16.1.2012

Hvað er framundan hjá sjónvarpsstöðvunum?

Á næstu vikum munu hefjast sýningar á nýjum dagskrárliðum hjá sjónvarpsstöðvunum. Við tókum saman lista yfir nokkra þeirra ásamt upplýsingum um nokkra eldri þætti sem eru að byrja aftur eftir frí.

ÍNN
Á ÍNN er að finna fjölda íslenskra þátta. Þar má meðal annars nefna Heilsuþátt Jóhönnu sem er á dagskrá á mánudagskvöldum en þar fær Jóhanna Vilhjálmsdóttir til sína hina ýmsu heilsuspekinga. Eldhús meistaranna er einnig á dagskrá á mánudagskvöldum en í hverjum þætti er atvinnueldhús heimsótt. Hrafnaþing með Ingva Hrafni er á þriðjudagskvöldum ásamt Græðlingi sem er áhugaverður þáttur um hvers kyns garðrækt. Fiskikóngurinn og Björn Bjarnason eru með þætti á miðvikudagskvöldum og á fimmtudagskvöldum fræðir Einar Kristinn áhorfendur um sjávarútveginn og Vínsmakkarinn upplýsir áhorfendur um mat og guðaveigar. Dagskrá ÍNN er endurtekin um helgar og allan sólarhringinn og einnig er hægt að horfa á þættina á heimasíðu stöðvarinnar.

RÚV
EM í handbolta hófst um helgina og stendur til 29. janúar. Stór hluti þjóðarinnar hefur ávallt mikla trú á íslenska landsliðinu og má því búast við töluverðu áhorfi eins og á undanfarnar keppnir.
Söngvakeppni Sjónvarpsins hófst einnig um helgina og lýkur keppninni með úrslitakvöldi þann 11. febrúar. Nánari upplýsingar um lög og keppendur hér.
Fræðsluþættir RÚV á mánudagskvöldum fá yfirleitt gott áhorf og umtal en ný sería, Inside the human body frá BBC, hefst mán.30. janúar.
Danskur þáttur, Borgen, hefst sunnudaginn 29. janúar. Serían hefur vakið mikla lukku hjá Dönum en frekari upplýsingar um persónur og leikendur er að finna hér
Bandarísk spennuþáttaröð, Detroit 1-8-7, tekur við af Criminal Minds á fimmtudagskvöldum en Criminal Minds hefur verið einn vinsælasti dagskrárliður RÚV undanfarið.
RÚV heldur áfram með heimildarmyndir á miðvikudagskvöldum en í febrúar er þemað tónleikar. Heimildarmyndir um eftirfarandi hljómsveitir verða á dagskrá: U2, SigurRós, Iron Maiden og The Rolling Stones.
Nýr íslenskur tónlistarþáttur, Tónsporið, í umsjón Jónasar Sen hefst fimmtudaginn 26. janúar.
Gettu betur hefst með beinni útsendingu föstudaginn 24. febrúar en Útsvarið fer í frí þann 17. febrúar.

 

Skjár 1
Americas next top model verður sem fyrr á dagskrá á miðvikudögum og í kjölfarið nýju þættirnir, Pan Am. Pan Am fjallar um áhöfn flugfélagsins, ástir þeirra og örlög. Spennandi þættir fyrir konur og karla
Ný þáttasería, Once upon a time er á dagskrá á laugardögum en þættirnir fjalla um Emmu sem kemst að því að í smábænum Maine þar sem ættleiddur sonur hennar býr, eru ævintýrapersónur í álögum og Emma er sú eina sem getur aflétt álögunum http://www.imdb.com/title/tt1843230/
Ný sería af 90210 hefst mánudaginn 16. janúar og einir vinsælustu þættir Skjásins undanfarin ár, CSI þættirnir, verða á dagskrá á mánudögum og miðvikudögum.
Cherry Goes Dieting hefjast þriðjudaginn 17. janúar. Kannanir sýna að um 37% kvenna í Bretlandi er yfirleitt í megrun. Cherry Healy sem hefur prófað alla megrunarkúra fer á stúfana og kannar þessa líkamsfituáráttu.
Prime suspect verða á dagskrá á þriðjudögum og fjalla um Jane sem er rannsóknarlögregla í New York. Þættirnir byggja á breskum þáttum sem voru vinsælir fyrir nokkrum árum.
Ný sería af The good wife hefst þriðjudaginn 31. jan.
Innlit-útlit með Sesselju Thorberg og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttir hefst í febrúar. Þær munu leggja áherslu á spennandi hönnun, húsráð og sniðugar lausnir fyrir heimilið með áherslu á notagildi. Nýtt og notað verður saman í bland og Fröken Fix verður á sínum stað með sín ráð. Sesselja og Bergrún halda einnig úti bloggsíðu http://www.skjarinn.is/einn/islenskt/innlit_utlit/

Skjár Golf
Golf frá morgni til kvölds. Sony Open 2012 - PGA mótarröðin heldur áfram með opna Sony mótinu. Í janúarmánuði á hverju ári koma saman 144 bestu kylfingar veraldar í skugga eldfjallanna á Hawaii. Allir fjórir mótsdagarnir verða í beinni útsendingu.
Golfing World daglegur fréttaþáttur þar sem fjallað er um allt það nýjasta í golfheiminum. Fréttir, viðtöl, kynningar á golfvöllum, golfkennsla, klassísk atvik í golfsögunni og margt fleira.
Upprifjun frá eldri golfmótum og margt fleira er á dagskrá Skjá Golfs í janúar.

 

Stöð 2
Nýr þáttur með Kalla Berndsen hófst í síðustu viku, Í nýju ljósi, og verður framvegis á miðvikudagskvöldum. Þátturinn er með breyttu sniði og lofa fyrstu þættirnir góðu.
Ástralska útgáfa The Block verður á mánudagskvöldum en þar keppast nokkur pör um að gera upp íbúðir.
Fjörugi fjölskylduþátturinn Modern family verður á dagskrá á þriðjudagskvöldum.
Íslensk dagskrárgerð fær að njóta sín á föstudagskvöldum en Týnda kynslóðin og Spurningabomban með Loga Bergmann hófust síðast liðinn föstudag.
Grey’s Anatomy byrjar aftur eftir frí miðvikudaginn 18. janúar og American Idol hefst 20. janúar og verður þátturinn alltaf tvöfaldur.
Bandaríski þátturinn The Kennedys hófst í byrjun janúar en eins og nafnið bendir til fjalla þættirnir um Kennedy fjölskylduna.
Edduverðlaunin verða í beinni útsendingu á Stöð 2 18. febrúar.
Smash eru nýjir þættir sem hefjast í febrúar og fjalla um lífið baksviðs á Broadway http://www.imdb.com/title/tt1825133/ Glee aðdáendur munu eflaust fylgjast með þessari seríu. Serían hefst á NBC í febrúar og er stefnt að því að þættirnir
verði sýndir strax í kjölfarið á Stöð 2.

Stöð 2 sport
Meistaradeildin heldur áfram og í febrúar er komið að 16 liða úrslitum en allir leikirnir verða sýndir í beinni á Stöð 2 sport. Leikirnir fara fram helgarnar 14. - 15. og 21. - 22. febrúar.
Um miðjan febrúar er komið að leikjum í 32 liða úrslitum Evrópukeppninnar í fótbolta og þann 26. febrúar er sýnt frá úrslitaleiknum í ensku deildarbikarkeppninni en undanúrslitaleikirnir fara fram í janúar og febrúar.
Stöð 2 sport sýnir einnig frá spænsku deildinni í fótbolta, þýska handboltanum og fleiri viðburðum á næstu vikum.

Við viljum hvetja ykkur til að fylgja okkur á Facebook og Twitter.. Við setjum reglulega inn áhugavert efni, bæði upplýsingar frá okkur og einnig ef við
sjáum áhugaverðar greinar, vefsíður, upplýsingar um breytingar eða nýtt efni hjá fjölmiðlum landsins, fréttir, auglýsingar og fleira sem okkur langar til að deila með ykkur.

http://www.skjarinn.is/einn/islenskt/innlit_utlit/

| More